Páskaegglosið

Nú eru páksarnir búnir og eftir situr maður með visnaðar hendur og þaninn maga. Eitt og annað verið brallað en það á það allt sameiginlegt að hafa ekki krafist vöðvaafls. Guðrún horfði á Mastersmótið í golfi og spilaði Tetris og ég svona lét lítið fyrir mér fara með bók og stússaðist í kringum hana. Eldaði þó við og við einhvern mat og sló henni reglulega gullhamra. Páskar sökka ekki eins mikið og þegar maður var í skóla. Þetta er barasta ágætt.

Síðan við Guðrún kynntumst höfum við farið út úr húsi svona ca. 4 sinnum (þá er ég að tala um eitthvað meira en að labba út í bíl). Tvisvar höfum við gengið í Skaffó (kaupfélagið) og fara þær ferðir seint í afrekaskrána sem einhver þrekvirki. Hér með afkrifa ég þær ferðir og gref í möl. Síðan tókum við á okkur rögg um páskana og fórum í 2 göngutúra, nýtt upphaf með hækkandi sól. Annað skiptið gengum við frá Hegranesinu eftir ströndinni og í bæinn og í gær gengum við smá hring á Reykjaströndinni.

Þessar ferðir hafa kostað viðurstyggilega súrefniseitrun með tilheyrandi svima og ógleði á köflum. Jafnvel farið út í ofskynjanir (fannst ísbirnir fylgjast með mér á Reykjaströndinni). Eftir fyrsta göngutúrinn vorum við svo aðfram komin að við sváfum í heila 4 klukkutíma þegar heim var komið. Það gerir meira en klukkutíma svefn á hvern genginn kílómeter. Þetta var þó öllu skárra í gær og þurftum við engan auka svefn. Ég var reyndar svo þreyttur þegar ég keyrði í vinnuna í morgun að ég hékk slefandi fram á stýrið og hélt ég væri á leiðinni í Legoland. En það gæti reyndar tengst einhverju öðru s.s mataræði.

Jæja þetta hlýtur allt að skána með tíðari útiverum og hækkandi sól. Að lokum verð ég að óska Skarphéðni til hamingju með afmælið sem var 26. mars og með Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta.

Góðar stundir, Bjarni

Ummæli

Stefán Pétur sagði…
Ég vil endilega nota þetta sama tækifæri til að óska Skarphéðni til hamingju með bæði löngu liðið afmæli og nýfengin Íslandsmeistaratitil..
Bjarni sagði…
Takk fyrir það;)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap