Menningin blómstrar
Ég þyrfti að fara að ganga með minnisbók á mér. Ástæðan er einkum sú, að ég gleymi því gjarnan í amstri dagsins um hvað ég ætla að blogga. Í gegnum venjubundinn dag rekst ég á ótal atriði sem mig langar að fjalla um en svo safnast þetta bara upp í höfðinu, ruglast saman og ornar að lokum. Ég ætlaði til að mynda að blogga um skyldleikaræktaðan kirkjukór en hef nú gleymt hver útgangspunkturinn átti að vera. Einnig var ég með hugleiðingar um konu sem fór annaðhvort í maganám eða fjarnám og hvernig þetta tvennt getur tengst.
Annars er bara allt bærilegt að frétta og eru menningaviðburðir ofarlega á dagskrá þessa dagana. Í gegnum skipulagningu sína á Sæluviku hefur Guðrún puttana á púlsinum og af nógu er að taka. Ég var við opnun Menningarhússss í Miðgarði á sunnudaginn þar sem hlýtt var á mis illa farið fólk syngja í kórum og kaffi drukkið á eftir. Húsið er glæsilegt og kaffið var gott, tónlistin afbragð. Nú styttist í afmælissýningu leikfélagsins og svo ætlum við að fara og sjá Stefán Íslandi- dagskrá með Karlakórnum Heimi í kvöld. Guðrún hefur einhverjar fleiri hugmyndir um afþreyingu á næstunni og ég geri bara eins og mér er sagt, klæði mig í lakkskó, set upp bindi og læt lítið fyrir mér fara.
Annars bara bíður maður eftir vorinu og golfkylfurnar eru volgar í skottinu á bílnum. Helvítis ótíðin í vetur hefur gert það að verkum að ástand vallarins er víst ennþá frekar slæmt hér í Sauðárkrókshreppi. Guðrún greip í kylfu um daginn og sýndist mér hún vera efnileg. Tekur sjálfsagt ekki marga daga að verða skárri en ég.
Hafið það gott, Bjarni

Ummæli