Afdjöflun og fleira

Jæja góðir hálsar. Ekki hefur manni gefist mikill tími til að setjast niður og skrifa eitthvað af viti og eins og ég kom að í fyrri pósti, þá hef ég verið á bölvuðum þvælingi vegna vinnunnar. En það góða er, þetta hefur verið alveg dásamlegur tími. Ég er búinn að róa frá Skagaströnd, Þórshöfn, Bakkafirði, Húsavík og Raufarhöfn. Við höfum verið heppnir með veður ef undanskilin er róðurinn frá Húsavík. Þar lentum við í helvítis brælu úti fyrir Flatey en það var svo sem ekkert til að grenja yfir. Allir hafa þessir grásleppukarlar verið alveg bráðskemmtilegir og tekið okkur vel. Til að bæta þeim upp ónæðið höfum við svo reynt að hjálpa þeim þegar við erum búnir að merkja. Maður er því einhverju nær um einhverskonar sjómennsku, búinn að greiða úr netjum, skera greyin (grásleppurnar) og þvælast fyrir þess á milli. Við Halldór (yfirmaður) erum búnir að sjá það út að sjómennskan er dans á rósum. Þessir andskotar sigla um á inniskónum, drekka kaffi, sólin skín sem aldrei fyrr og þegar í land er komið sippa þeir í seðlum. Sipp og hoj, sipp og hoj.... Plan= kaupa bát á erlendu láni= peningur og sældarlíf. Annars vorum við að setja upp viðskiptamódel sem snýr að því að heyja í Flatey á Skjálfanda, koma því í gáma og flytja á Japansmarkað. Getur ekki klikkað.

Annars ætla ég að bregða mér heim í sveit núna á morgun og vera viðstaddur afdjöflun Helgu systur minnar. Guðrún kemst því miður ekki þar sem hún er að drukkna í vinnu. Sæluvika framundan og ég á eitthvað lítið eftir að sjá hana. Hún er sjálfsagt að hefna fyrir sjóferðir og fjarverustundir mínar. Annars ekkert títt.....

kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap