Lítið um ekkert
Einhverju sinni, í kennslutíma í þriðja bekk í Glerárskóla, spurði Unnur Ólafsdóttir kennslukona okkur krakkana að því hvort við gætum fundið eitthvað starf þar sem maður bæri enga ábyrgð. Eftir töluverða umhugsun fann ég eitt slíkt starf. "Bókasafnsvörður", sagði ég helvíti ánægður með mig. Eftir smá rökræður við kennnarann varð ég þó að játa mig sigraðann og éta þetta ofaní mig. Sem bókasafnsvörður ber maður víst ýmsa ábyrgð sem þarf svo sem ekkert að tíunda hér. Ekki veit ég hvað varð til þess að ég gaf þetta svar. Sennilega dróg ég þessa ályktun út frá mikilli kyrrsetu, bókalestri og töluverðri offitu margra bókvarða.
Mér verður æ oftar hugsað til þessarar kennslustundar í dag og finnst það furðu sæta hvað ég gæti talið upp mörg störf í dag þar sem iðkandinn ber akkúrat enga ábyrgð. ZERO! Ég þarf heldur ekkert að telja það allt upp, þið vitið hvert ég er að fara.
Þegar ég var að keyra í vinnuna í morgun mundi ég allt í einu eftir einhverju sem ég þarf að lýsa frati yfir. Í amstri dagsins hef ég nú gleymt því og verð því að bíða með það. Því óska ég ykkur bara góðrar helgar.
Kveðja, Bjarni

Ummæli