Edit Posts

Síðustu daga, reyndar vikur, hef ég verið að reyna að beita fræðilegri nálgun, eða aðferðum, til þess að fanga hugsanir mínar, flokka þær, vinna úr þeim og koma þeim á blað. En ekkert er í hendi. Hausinn á mér er að springa í augnablikinu og ég fer að verða þrútinn í framann ef ég kem þessu ekki út úr mér fljótlega. Ég hef trú á, að ef ég næ þessu takmarki mínu, þá verði allt krepputal voðalega eitthvað fjarstæðukennt innan fárra vikna (sumir segja, voða eitthvað 2007). Ég hef lausnir á öllu en þetta blandast bara allt í einn hrærigraut og ég fer bara að hugsa um skútu. Ég læt að sjálfsögðu vita þegar ég hef fundið leið til að kippa þessu í liðinn og mun þá leggja fram eigin aðgerðarpakka (enn eitt orðið sem ég elska að hata).

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap