Póstur 223
Það hafa menn víða úr þjóðfélaginu komið að máli við mig og beðið mig að bæta hér inn nýjum pistli. Mest hafa þetta verið fyrirmenni í þjóðfélaginu. Ég hef hinsvegar verið tölvulaus upp á síðkastið og reyndar líka á ferð og flugi og því hefur gefist lítill tími fyrir pistlaskrif. Það er helst að ég hafi tíma til að kíkja í tölvu í hádegishléinu í vinnunni. Það mun nú vonandi breytast fljótlega.
Nú er ég einmitt í hádegismat og verð því að láta það nægja í bili, að tilkynna hér með opinberlega, að ég ætla EKKI að gefa kost á mér í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norð-vestur kjördæmi. Einnig ætla ég að nota tækifærið og lýsa yfir frati á saltkjötsrúllum. Saltkjöt á að vera í bitum með beini, helst heimasaltað. Það er að verða lenska, sérstaklega hjá mötuneytum, að bjóða upp á þessar helvítis rúllur sem eru alls ekki nægilega lystugar. Þetta er áhyggjuefni.
Kveðja, Bjarni

Ummæli
Bestu kveðjur