Orð og setningar sem mér finnst gott að láta fara í taugarnar á mér

Stofa, setur og eitthvað annað helvítis nafn sem ég man ekki í augnablikinu og notað er á hluti eins og Auðunarstofu, Vesturfarasetur, fræðslu, náttúru, nýsköpunar- setur og stofur etc. etc. Eitthvað sem á að vera rosa menntað og flott og bjarga landsbyggðinni. Ég ætla að stofna Fræðslugreni Norðurlands Vestra og Náttúruslömm Sauðárkróks. Ekkert á móti fyrirbærunum sem slíkum, bara nöfnunum.

"Við erum í miðju öldurótinu". Fuck Off!

"Þegar við höfum komist í gegnum versta brimskaflinn" Æla

"Ekki gott að skipta um hest í miðri á" (Varðandi ríkisstjórnarskipti). Ég myndi reyna að skipta um hest í miðri á ef klárinn sem ég sæti væri að verða sjálfdauður. Það verður svo að koma í ljós hvernig múlasnar eru á sundi.

Stjórnlagaþing, lýðræði, slá skjaldborg um heimilin, frysting eigna og endurnýjað umboð frá þjóðinni. Allt orð sem stjórnmálamenn grípa á lofti, ofnota í sína þágu, skilja ekki og gera ekkert með.

Annars er ég í svo góðu skapi í dag að ég man ekki eftir neinu öðru.

Hafið það gott um helgina, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap