Póstur tvöhundruðogeitthvað
Jæja þá er maður kominn til Akureyrar eftir dásamlega dvöl á Hólum og brauðstritið heldur áfram. Veit ekki afhverju í fjandanum ég er að skrifa eitthvað núna því ég hef nákvæmlega ekkert að segja. Hér gengur hver eyminginn um annan þverann og þau fáu skipti sem maður hittir utanbæjarfólk má maður ekki vera að því að tala við það. Illa verkaðar gangstéttir og hált, enda hefur Akureyringum hingað til þótt mýkra að sitja við rekkjur með hendur í skauti.
Annars var ég að hugsa um það þegar ég vaknaði í morgun að maður hefur aldrei prófað að reka myndspóluleigu með sælgætisbar. Þetta hljómar sem spennandi verkefni og ekki ólíklegt að ég skipti um starfsvettfang fljólega. Ég gæti opnað við hliðina á versluninni sem Ragnar ætlar opna í tilefni kreppunnar og á að bera nafnið "Kaðla og kindabyssuverslun Ragnars".
Ef ekkert verður af þessu hef ég líka velt fyrir mér að opna verslun með kafíar og kampavínsglösum niður í göngugötu. Gott plan. Man þegar ég fattaði að það væri komin kreppa. Það var á áliðnum degi í lok ágúst byrjun september og ég var að keyra upp í Mývatnssveit. Þá heyrði ég eftirfarandi auglýsingu í útvarpinu. "Rýmingarsala, allt á að seljast. Gosbrunnar.is" Maður veltir því fyrir sér hvað var eiginlega í gangi í þessu þjóðfélagi.
Jæja, nú hef ég skrifað fullt, um ekki neitt. Bless, Bjarni

Ummæli