Afmælishelgi
Jæja börnin góð. Þá er maður búinn að eiga enn eitt afmælið og það var alveg dásamlegt alveg hreint sko. Fékk Þolla og Stebba í heimsókn og að sjálfsögðu eyddum við smá tíma í óreiðu mývetnskrar náttúru við veiðar á hænsnfuglum. Þeir féllu nokkrir og við félagar sjáum fram á hátíðleg jól með rjúpnalykt og öllu tilheyrandi. Vorum bara nokkuð heppnir með veður og samlokur með hnausþykkum sperlasneiðum, mikið smjör, kókómjólk og blóðugir puttar færðu okkur nær upprunanum. Að sitja svitablautur og hríðskjálfandi á hjarnskafli, horfa yfir konungsríki sitt og snæða feitmeti með sálugar rjúpur í vesti sínu er toppurinn á tilverunni.
Einnig eyddum við góðum tíma á bakvið eldavélina og matreiddum gæsir og lambaket af mikilli snilld. Namm! Síðan átti þetta bara eftir að batna en ég held því fyrir sjálfan mig.
Hafið það sem allra best lömbin mín, Bjarni
Ps. Nýjar myndir í albúmm búmm.....
Ummæli
kv Skarpi