O mio babbino!!
Ekkert hefur komið frekar í ljós hvort þessi stjörnuspá mín var sönn og rétt. Lítið gerst í þeim málum og maður bara gáir til veðurs, fær sér kex og dæsir. Þorvaldur var veðurtepptur í forgörðum helvítis og mætti ekki í gæs um síðustu helgi. Ég setti skróp í kladdann og hann þarf að vinna yfirvinnu þegar hann kemur, sem verður fljótlega. Þetta kom nú svo sem ekki að sök þar sem þessi samkynhneigði fiðurfénaður er víst allur úti í móa að éta einhver bláber (gæsirnar en ekki Þorvaldur).
Þegar ég mætti í vinnuna í morgun var húsvörðurinn hér á bæ að ryksuga ber af runnunum við anddyrið, tjáði mér að hann væri að fara að brugga. Þessi drengur er meistari! Hann hafði útbúið plastdunk á ryksugu og ryksugaði illiberjarunnana í gríð og erg, var kominn með 3 eða 4 kg. af berjum á no time og lítið sem ekkert rusl (sem fór í ryksuguna). Ætlaði heim seinnipartinn að ryksuga rifsberjarunnana sína. Svona á að fara að þessu enda alger helvítis geðveiki að plokka þennan ófögnuð með puttunum.
Jæja slakið bara á og hlustið á Mariu Callas gubba upp fögrum tónum

Ummæli