Mikil bloggleti
Jæja nú er haustið komið og þá er hægt að fara að blogga aftur. Haustið læddist aftan að mér og stakk mig í bakið og sparkaði mig niður. Finnst alltaf sumarið búið þegar verslunarmannahelgin er á enda.
Fór með Dóra í hreindýr um helgina og var það ferð til fjár fyrir skyttuna (ég var áhorfandi). Dóri skaut alveg hreint voðalegan tarf sem sló alla mína tarfa út á einu bretti og hraðar en Árni Jónsen slær niður homma á þjóðhátíð. Kallinn afgreiddi þennan feikilega tudda eins og atvinnumaður, 95 kg. fallþungi og krúna sem er á stærð við sendinn á útvarpshúsinu í Efstaleiti.
Annar bara skító sæmó að frétta. Er að fara til USA í næstu viku að horfa á PGA mót í golfi. Ferðin verður í boði Jens og við erum með full clubhouse pass og allar græjur. Finnst líklegt að ég eigi eftir að segja nokkuð ítarlega frá því. Jæja vinna meira.......
Kveðja úr kuldanum, Bjarni

Ummæli
Kveðja úr Borgarfirðinum
Þóra, Örvar og Sigurrós