Vinnan göfgar manninn
Ég fór að velta því fyrir mér í morgun hvað væri langt síðan ég stundaði vinnu síðast. Ætli ég hafi ekki síðast fengið greitt fyrir að mæta daglega í sundlaugina heima í sveit fyrir einum 4 árum, rukka fólk og standa svo perralegur í hurðinni á góðviðrisdögum, éta ís og góna á stelpur. Sennilega er styttra síðan ég tók að mér vinnu við Hólaskóla. Vinnan átti að vera fólgin í því að stunda rannsóknir á lúðum en þegar ég mætti á staðinn voru hvorki ker né lagnir, þ.e lúðurnar voru án húsnæðis. Það sumar var ég vísindamaður dulbúinn sem verkamaður, stundaði plastsuðu á rörum og múrvinnu. Á kvöldin vann ég svo sem aðstoðarkokkur á Hólabyrgðunni og það var því nóg að gera það sumarið. Ég veit ekki hvað á að kalla árin í dælustöðinni? Sama hvort það var vinna eða ekki þá vildi ég ekki hafa misst af þeirri endemis vitleysu.
Nú er ég mættur í nýju vinnuna og sit hér og blogga og undirbý mig undir að fá frídag á morgun. Aðrar vinnur sem ég hef stundað hafa yfirleitt ekki boðið upp á þann munað að fá frídag á þjóðhátíðardaginn. Ég held því ég ætti að fara að snúa mér að því sem ég fæ greitt fyrir......
Kv,Bj

Ummæli