Verðbólgan farin að bíta

Eftir þetta áfall með verkstæðið ákvað ég að nú væri kominn tími til að láta ekki tuska sig svona til alltaf hreint (þetta var vægt orðað). Án þess að vera með leiðindi náði ég að lækka þennan reikning um 25%. Ég átti gott spjall bakvið tjöldin við einhvern yfirmann sem var með penna og símamóttakara í eyranu. Þetta var á sálfræðilegum nótum með bílatekknísku ívafi þar sem sveitapilturinn var leiddur í allan sannleika um undur bílvéla nútímanns. Sættir náðust með handabandi.

Gekk frá samkomulagi um nýja íbúð og var í skýjunum. Hún er með upphituðum bílakjallara og gömlu fólki. Verðið sanngjarnt og stutt í vinnuna.

Náði samningum við Matís ohf. sem ég er sáttur við.

Fór á Subway til að halda upp á daginn. Verðbólgan hefur hækkað skammtinn minn úr 800 kr. upp í 900kr. á einni viku - bömmer.

Fór og kíkti á Gunna spila fótbolta í bikarmóti í Boganum. Hann hljóp inná og ég keyrði hann upp á spítala með öxlina úr lið nokkrum mínútum síðar- bömmer.

Þegar allt er tekið saman þá er ég eins og meðal Íslendingur, yfir meðallagi hamingjusamur og bjartsýnn á heimsvísu, með brenglaða ýmind af landi og þjóð en þarf ekki þunglyndislyf til þess.

Amen, BJ

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Bjarni minn, það er gott að þú náðir að lækka verkstæðisreikninginn. Annars hef ég ákveðna samúð með verkstæðismönnunum, þeir þurfa að lifa eins og aðrir og verða að gera það sem gera þarf til þess - rétt eins og við hin.

Hvar er nýja íbúðin?

Kveðja, -jb
Nafnlaus sagði…
Getur verið að þú sért eins og meðal Íslendingur en ert allavega undir meðalhæð og þyngd seinast þegar ég vissi.
Bjarni sagði…
Íbúðin er í Hjallalundi, göngufæri við vinnuna og afar smekkleg. Ég var nú að tala um andlegu hliðina. Varðandi líkamsburði þá er ég eins og meðal búskmaður í Kongó.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap