Novus

Eftir jafnteflisleik Liverpool og Chelsea í gærkveldi kom ég á skrifstofuna með svöðusár á sálinni. Ég settist niður og hóf að kveða mikinn rímnnabálk um frænda okkar Jón Árna Riise. Eins og flestir vita skoraði hann annsi hreint maklegt sjálfsmark fyrir mína menn í gær á lokasekúndum ólöglegs leiktíma. Í kvæði mínu hafði ég uppi ljót orð um Riise og norsku þjóðina. Þar brúkaði ég m.a. orð eins og þaralýs, ryðhaus og fjörulallar sem eru ekki sómakærum skólapilti sæmandi. Ég ákvað að gefa þessu eina nótt og nú hefur bráðið aðeins af mér. Þar með sannast hið fornkveðna, "Eigi skaltu rímur kveða undir sorgarskýi ósanngjarnra jafntefla".

Annars sá ég að vörubílsstjórar voru að undirbúa mótmæli nú í morgunsárið. Hvernig væri að hinn almenni borgari færi að mótmæla háu eldsneytisverði með því að hefta för vörubifreiða og vörubifreiðastjóra? Jens frænda datt þetta í hug og finnst mér hugmyndin góð. Nú skora ég á einvherja vini mína þarna fyrir sunnan að elta hinn sturlaða Sturlu Jónsson þegar hann er að fara með fjölskylduna í Bónus og leggja sitthvoru megin við hann og stoppa hann. Gleypa svo lyklana og koma sér í burtu. Í staðinn skal ég fara og leggja bílnum mínum þvert á þjóðveg 1 í Öxnadal og hlekkja mig við hest eða kind.

Ég segi niður með vörubílsstjóra og upp með strandflutninga.

Góðar stundir, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap