La Post 137

Jæja börnin góð, héðan að norðan er svosem allt þokkalegt að frétta. Þetta gengur allt sinn vana gang og maður bara reynir að sitja yfir pappírum og meika það. Þarf nú reyndar að bregða mér þarna suður yfir heiða fljótlega til að mæla hitaeiningar í fiskaskít og fiskafóðri. Þetta hljómar kannski eins og hver önnur steypa en er nú samt alveg satt. Svo er víst vorið að koma á þriðjudaginn en ekkert útlit fyrir að maður komist út í góða veðrið á næstunni. Maður verður bara svalur á skrifstofunni í staðinn.

Í morgun breytti ég út af minni venjulegu morgunrútinu. Á þessum aldri á maður ekkert að vera að prófa einhverjar nýjungar, sértaklega ekki nývaknaður. Ég braut 2 diska, sullaði mjólk á gólfið og spæleggi á stofugólfið. Ég ætla að fara í gömlu rútínuna í fyrramálið.

Jæja hafið það gott, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap