Kaffi kaff kaf ka k.......



Ég var að glugga í rannsókn sem ég fann varðandi blóðflæði og koffín. Þetta byrjaði reyndar sem leit að grein um blóðfaktora í þorski en svo fór ég eitthvað út af sporinu og fann þessa grein. Rakst reyndar líka á grein þar sem verið var að prófa samspil kókaíns og koffíns á hunda sem hljómaði áhugavert. Einhvern veginn hljómar það nú samt ekki eins og öruggt vinnuumhverfi fyrir vísindamenn. En jæja ég hef verið að velta fyrir mér hvort eða hvernig kaffidrykkja hefur áhrif á mann, sérstaklega varðandi íþróttir. Hér kemur smá úrdráttur frá Dr.Kaufmann og félögum sem frömdu rannsóknina:

(Magn koffíns fyrir hvern einstakling sem tók þátt í þessu rugli var samsvarandi 2 kaffibollum).


Caffeine Limits Blood Flow To Heart Muscle During Exercise

Blóðflæði eykst yfirleitt við æfingar og niðurstöðurnar benda til þess að koffín minnki getu líkamanns til "pumpa"/skila blóði til hjartavöðvans eftir þörfum. Dr. Kaufmann segir að koffín kunni að blokka ákveðna viðtaka á æðaveggjunum sem geti truflað eðlilegt ferli þar sem adenosine á að gefa æðum skipun um að þenajast út við áreynslu.

Við höfum núna góðar sannanir fyrir því að sem örfandi efni sé koffín ekki jákvætt fyrir blóðflæði til og frá hjarta. Það kann að vera örfandi, þannig fólki finnist það meira vakandi og þannig betur búið undir átök. En núna myndi ég alls ekki mæla með því íþróttafólk fái sér kaffi fyrir æfingu. Það hefur örugglega ekki jákvæð áhrif líkamlega og sennilega hefur það neikvæð áhrif.


Fyrir þá sem hafa gaman að vera á fjöllum þá er líka hægt að benda á það að áhrifin aukast mjög með hæð yfir sjávarmáli.

Þetta eru hreinlega hræðilegar niðurstöður. Sérstaklega í ljósi þess að 2 kaffibollar eru ekki upp í nös á ketti. Það er nú bara svipað og maður vill drekka af kaffi á einni æfingu. Jæja svona er þetta bara.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Já Kaffið er gott. Og sennilegast að það sé ein af földu dauðasindunum.
Urgelt vinur okkar á youtube á einn góðan pistil um kaffi, sem gæti næstum fengið mömmu til að hætta að drekka þann uppáhaldsdrykk.
Mæli með að kíkja á hann. 9 mínútur af neikvæðum fróðleik um koffín almennt.
http://youtube.com/watch?v=_onFVXkbFwE

Spilamann
Bjarni sagði…
Já ég bara hreinlega þori ekki að kíkja á þetta;)
Nafnlaus sagði…
Já það hlaut að vera, manstu eftir fótboltaæfingunni heima í sveit hérna í denn þegar við fengum okkur kaffibolla á milli leikja. Ég man eftir að hafa verið óþarflega lélegur í leikjunum á eftir. Í fyrsta sinn held ég samt.

Heyrumst næst
Bjarni sagði…
Kannski að ég hafi alltaf verið svona lélegur í fótbolta bara út af kaffi??

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap