Til hamingju Dóri og Sigrún

Jæja þá er Dóri búinn að eiga barn og ég er viss um að Sigrún hjálpaði honum eitthvað við það og ber að þakka henni fyrir það. Föður heilsast víst vel og var hann lukkulegur þegar ég átti við hann símafund í gær. Afkvæmið er stúlka og því eru vonir mínar um að barnið eigi eftir að verða skírt í höfuð mér að minnka. Annars hljómar t.d Anna Bjarni Halldórsdóttir ekkert svo illa.

Annars hef ég verið að koma mér fyrir í nýrri kytru ofarlega í Þórunnarstrætinu. Holan er á besta stað í bænum og stutt í alla helstu þjónustu s.s sundlaug, búð og menntaskólavist. Fór í gær og keypti stórbrotið rúm (mamma borgaði reyndar) og nú fyrst er komin góð ástæða til að fá skammdegisþunglyndi. Held ég gæti legið í þessu rúmi dögum saman og sofið. Þegar maður flytur inn á nýjan stað kemur natturlega ýmislegt í ljós sem vantar. Ég ætla ekki að telja það upp hér en ef þið vitið um ókeypis eða ódýra frystikistu megið þið láta mig vita.

Ummæli

Halldór sagði…
Takktakk, annars er náttúrulega bjarnfreður fallegt nafn og á einstaklega vel við...

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap