Póstur 108
Það er nú meira hvað maður er eitthvað andlaus og hefur fátt til að kvarta yfir þessa dagana. Mínir fjölmörgu lesendur mega því búast við því að uppfærslum fækki eitthvað á næstunni hér á Skrifpúltinu. Ég var jafnvel að hugsa um að segja af mér hérna og loka þessu bara en er farið að finnast of vænt um þessa dagbók mína til lóga henni.
Helgin var afskaplega róleg hjá manni og maður lá bara í laupnum og lét sér leiðast. Maður er bíllaus ennþá og því fer maður ekki spönn frá rassi og nennir varla að versla í matinn. Vantar t.d undanrennu en er að hugsa um að bíða með það fram að mánaðarmótum. Maður gengur til vinnu á morgnana og svo heim aftur seinni partinn. Þar hef ég dundað mér við að horfa á skandinavískar sakamálamyndir, skoða textavarpið og lesa golfblöð. Það er kannski ágætt því maður eyðir þá meiri tíma hér á Borgum við skriftir í staðinn.

Ummæli
Héðan allt meinhægt. Engir morðleiðangrar síðan ég var úti með Gísla. Reyndar búið að vera fullt tungl og skafheiðríkt í 2 daga en engin föl á jörðu. Hef verið of þreyttur til drápa. Læt frá mér heyra von bráðar pr þráð.
Pápi