Mættur á Eyrina

Góðan daginn.

Nú er ég mættur á Akureyrina og það er jú bara nokkuð notaleg tilfinning. Tekið var á móti mér með viðhöfn af Gunnari og frú, á borð bornir heitir réttir og uppábúið gæðarúm í gestasvítu þeirra hjúa. Í dag hef ég svo verið í skólanum, rætt við fólk og farið að skipuleggja framhaldið. Síðan fékk ég að kíkja á nýju skrifstofuna þar sem við mastersnemar erum og það er ekkert slor. Ég er á 7 hæð á Borgum með útsýni yfir Eyjafjörðinn. Vaðlaheiðin teygir sig tignarleg til norðurs, gulli slegin bleikum bjarma vetrarsólar, Kaldbakur rís úr sæ og drottnar yfir þessum fallega firði rúmlega 1100 metrar á hæð. Bærinn hvílir svo friðsæll sem sofandi hundur við fætur mér. Skrifborðið mitt er á stærð við fótboltavöll, skúffur og hillur á báðar hendur og stólinn minn er þægilegri en stólpípa á sunnudegi. 6 metra á vinstri hönd er svo kaffivél sem malar baunirnar sjálf með þægilegu mali. Hvað í andskotanum ætti ég að biðja um meira.

Guð blessi þennan bæ, guð blessi þennan skóla og megi drottinn vaka yfir firði þessum.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Til hamingju með heimkomu. Vonandi að akureyri fari ágætlega með þig.
Passaðu þig samt á honum Ragnari sem býr þarna einhversstaðar, hann er ekki nógu góður félagsskapur...
Heyrumst næst

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap