104

Jæja þá er maður að koma heim. Búinn að fara með bílinn til Danmerkur, búinn að pakka, búinn að öllu nema að vera stressaður. Veit ekki hvort það er ellin en ég er alltaf orðinn eitthvað tens fyrir svona ferðalög. Kíki 31 sinni hvort ég sé með vegabréf og 15 sinnum hvort ég sé með síma, 17 sinnum tékka ég á veskinu og nokkrum sinnum hvort ég sé ekki örugglega í buxum. Samt gleymi ég alltaf einhverju.

Ég held ég lendi um klukkan tvö á morgun á Keflavík og fæ svo far með Jens í bæinn. Gisti hjá Dóra næstu nótt og held svo norður í sólina á þriðjudag ef ekkert af þessum samgöngutækjum sem ég nota klikka. Mikið held ég að allir verði nú voðalega glaðir að sjá mig, ég væri það allavega ef ég hefði ekki séð mig svona lengi.

Hafið það gott þar til þið hittið mig, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Ég veit ekki með þig en ég verð mjög glaður í hjarta mínu að hafa jafn mikinn herramann og þig í mínu bæjarfélagi
Bjarni sagði…
Takk fyrir elsku vinur. Nú þurfum við að fara að hittast og ná upp þræðinum að nýju. Ég er búinn að panta mér Arsenal heyrnahlífar svo ég ætti að geta talað við þig.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap