Tvífarar dagsins
Þegar við vorum á Laugum var ég alltaf Larry Bird. Nú hefur Skarphéðinn tekið það af mér enda eru mennirnir sláandi líkir. Spurning hvað þessum örfáu börnum sem nenntu að mæta á þennan körfuboltaleik finnst um það? Gangi þér vel í Tyrklandi Skarphéðinn minn.
Ummæli
Hér ligg ég flatur á herbergi mínu á Hótel Eken Prestige í Bandirma í guðsvolaða Tyrklandi og slæ á lær mér og skelli uppúr yfir tvíförum vikunnar...við Helgi Már herbergisfélagarnir vorum einmitt að ræða þennan fallega skotstíl í gær og hvað hann líktist mestu skyttu allra tíma, honum Bjarna Jónassyni frá Brekku. Og það er reyndar satt líka, ég er orðinn jafn hittinn og Fuglinn sjálfur, svo nú mega tyrkjadjöflarnir byrja að sjá eftir því að hafa riðlast á öllum kellingunum þarna árið 1600+ e-ð í Vestmannaeyjum (hefðu þeir bara mætt um Verslunamannahelgina þá hefði þetta verið bara eðlilegt...) því eftir 4 tíma mun þristunum byrjað að rigna yfir þá og þeir verða sendir til síns heima, helvískir...
fær mar svo að sjá kallinn um jólin eða hvernig er þetta eiginglega???
Kv. frá helvíti
Jordan