Gunnar á Hlíðarenda að mæta á svæðið
Jæja góða kvöldið.
Ákvað nú bara að stimpla mig út í bili. Það er þó aldrei að vita nema að maður láti fljóta eitt feitt blogg þegar maður kemst í tölvu í Lundi. Jafnvel einhverjar golfmyndir ef við fáum aðgang að einhverjum völlum vegna eiturlyfjaneyslu og ofurölvunar. Ég sæki Gunnar á Gardemoinn í fyrramálið og keyri með hann, án nokkurra stoppa yfir landamærin til Svíþjóðar. Ég held hann sé of saklaus í eðli sínu til að upplifa Noreg strax. Svíþjóð er fínn staður til að neutralísera hann og aðlaga hann að skandinavískum hefðum. Ætlum að byrja á því að stoppa í risamollinu mínu í Nordby og leyfa Gunna að fara á beit í einhverjum verslunum. Síðan verður keyrt til Gautaborgar og þar eigum við bókaða gistingu á farfuglaheimili rétt við einhver fínan golfvöll. Síðan er bara að rífa sig á lappir kl.06:00 á sunnudaginn og vona að við fáum tee- tíma. Síðan verðum við bara að sjá hvað tímanum líður og vonandi næ ég eitthvað að sína Gunnari Gautaborg sem er jú mín sérgrein. Mikill Gautaborgarmaður. Nú þá er víst best að koma sér suður úr til Lundar þar sem grasið grær og fuglarnir syngja allan sólahringinn. Vonandi komumst við á einhverja velli þar líka.
Með glassúr og sykurkveðjum frá Noregi, Bjarni.

Ummæli