Réttur dagsins

Nú hef ég ákveðið að kaupa mér ekki aftur í matinn hérna í Noregi. Ekki svo að skilja að ég ætli að hætta að næra mig heldur nenni ég ekki að standa í því að elda heima við. Hér á kampusi er ágætis tería sem býður prýðilega rétti á ágætis verði. Fyrir heita máltíð og meðlæti greiðir maður yfirleitt frá 470 til 520 kr/isl og finnst mér það bara nokkuð vel sloppið. Það er allavega erfitt að fara út í búð og versla góða máltíð fyrir þann pening og fínt að losna við umstangið við eldamennsku í 6 manna eldhúsi.

Hingað til hef ég svo sem verið nokkuð sáttur við það sem hefur verið kastað fyrir mig en er ekki frá því að matseðillinn verði furðulegri eftir því sem líður á vikuna. Þannig hefur kokkurinn verið voðalega áhugasamur þegar hann byrjaði að semja matseðilinn og splæsti í elgkarbonara sem ég missti því miður af á mánudaginn. Í gær át ég lax og í dag fékk ég kjúkling. Síðan hefur metnaðurinn farið fyrir lítið eða maðurinn brjálast. Ufsi í tómat og kakósóu með grænmeti og hrísgrjónum. Ég veit ekki alveg hvernig á að taka svona gjörningi. Ég er samt orðinn svo forvitinn að ég er að hugsa um að skella mér í mat á morgun og ég læt alveg ábyggilega vita hvað mér finnst.

Ummæli

Halldór sagði…
Við ættum kannski að láta kokkinn fá uppskriftirnar okkar frá því í gamla daga, eitt kíló af ýsu og einn baukur af jozo salti og ýmislegt fleira sem ekki verður tíundað hér....
Bjarni sagði…
He he já hann gæti alveg ábyggilega notað það eitthvað. Hrá ýsa með hráu majonesi og jozo, hver man það ekki. Komst reyndar að því að ég var að forheimskast mikið og þetta er víst ufsi í tómat og kókóssósu. En mér er sama, þetta hljómar mjög illa.
Nafnlaus sagði…
Hvernig væri nú að bláfátækur endinn hann þú myndir nú ekki heimta einhverjar stórsteikur og með því.. Ufsi er herramanns matur og ekkert að því að fá sér svoleiðis með dash af lýsi og vel soðnum radísum
Bjarni sagði…
Já það er ekki að spyrja að þessum afdælingum. Í Mývatnssveit vorum við Halldór aldir upp á smjörsteiktum silungi eða soðnum, flóabröndum úr vatninu og urriða úr Laxá. Með bráðnu smjöri, rúgbrauði og kartöflum. Á sama tíma hafið þið sennilega þurft að hýma í skítköldum torfkofum, slafrandi í ykkur ufsasoðningu og skola því niður með því rótargrænmeti sem telst ei vera matur. Mest er ég hissa að þið hafið haft efni á lýsi þarna uppi á þessum grjótmelum. Er ekki annars allt gott að frétta af þér og kvinnunum þínum?

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap