Rússar og nærsveitamenn

Hvað er betra en að vakna snemma í sól og blíðu, fá sér vænan bolla af rjúkandi Löfbergs Lila og hlusta á Rás 1. Sólin kyssir akra og breiðir hlýju sína yfir skóga og gömul tréhúsin allt um kring. Hettusöngvari sest á grein í tréinu mínu, fyrir utan gluggan minn og segir "Halló Bjarni, góðan daginn fallegi maður". Gamall maður ber út brúnost í hús og börnin syngja "Dýrð sé drottni í upphæðum og Haraldi konungi vorum". Allir bera Bergans bakpoka fulla af lífsgleði og hamingju til vinnu og skóla. Djöfullinn maður, bara það væri gönguskíðafæri.

Í dag ætla ég ekki að vera jafn stressaður og í gær. Í dag ætla ég að drekka minna kaffi en í gær. Í dag ætla ég að loka hurðinni á bílnum mínum þegar ég vík frá honum. Samt ætla ég að áorka meira en ég gerði í gær.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Vonandi gekk dagurinn vel hjá þér, minna stress með minna kaffi og meiri orku! :-)/Hafrún
Bjarni sagði…
Já takk fyrir það, hann gekk mjög vel og skilaði nokkuð miklum afköstum. Kaffidrykkjan var samt að sjálfsögðu mikil;)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap