Rjúpur
Jæja elskurnar, er rjúpnabrjálæðið ekki að byrja á morgun? Set hér inn í tilefni af því færslu úr veiði- skruddunni minni. Mikið sé ég eftir að hafa ekki verið duglegri að skrifa síðustu ár í þessa bók mína.
Laugardagur 18. okt. 1997
Fyrsta rjúpnaferðin þetta árið. Ég gekk austur með fjallinu og út í Tittlingsbrekku, þaðan í borgirnar n-austanmegin við. Sá slóðir en engar rjúpur. Þó nokkuð af gæsum flugu yfir í oddaflugi, 4 hópar sem töldu ca. 30-40 fugla hver.
Veður: 15 cm jafnfallinn snjór. Logn til að byrja með en blés svo aðeins, hiti -2°C.
Sunnudagur 19 okt. 1997
Fór með Gísla og Einari í Bóndhólshraun. Vorum einnig N-vestanmegin við fjöllin. Þó nokkuð var af fugli sem var í meðallagi styggur. Ég skaut 10 og Týra hljóp á eftir einni, stökk upp í loft og náði henni.
Veður: 15 cm jafnfallinn snjór, frost var c.a -3°C og veður var mjög fallegt.
Við flettingar aftar í bókina kemst ég að því að færslurnar hafa sífellt orðið nákvæmari og þar af leiðandi lengri. Í flestum tilfellum sýnist mér það nú samt bara vera til bóta. Ég nenni því ekki að henda inn fleiri færslum. Mikið ofboðslega er samt gaman að kíkja á þær og rifja upp þessar ferðir sem hafa gefið mismikla veiði en þó yfirleitt svalað frumþörfum mínum. Jæja þið sem eruð að fara að skjóta rjúpu á næstunni, góða skemmtun.
Ps. Þessi nákvæmni mín með ca. -3°C vekur hrifningu mína. Örlög um akademíska stórsigra hafa verið ráðin, þótt ekki hafi verið augljós þá stundina.

Ummæli