Merkileg frétt
Fann þessa frétt á visir.is og finnst hún merkileg og lögreglan á heiður skilinn fyrir vel unnin störf og kurteisi.
Lögregla var kölluð að fjölbýlishúsi í Kópavogi upp úr miðnætti, þar sem kona var út á svölum og öskraði. Hún tjáði lögreglumönnunum að hún birgði svo mikla reiði inni í sér að hún yrði að öskra, hverju sem tautaði og raulaði.
Lögreglumennirnir höfðu skilning á því og buðu henni í bíltúr út fyrir bæinn til að klára málilð, sem hún þáði. Eftir að hafa öskrað nokkra stund uppi í Heiðmörk, var hún tilbúin til að fara heim að sofa, og hefur ekki verið kvartað meira undan henni síðan
Ummæli
Pápi
PS sé mína sæng útbreydda: verð að fara að þrífa aftur
Kveðja
Hafrún