Fróðleikur
Ég er búinn að vera mikið að leita mér að vísindagreinum í ritgerð sem ég á að skila fljótlega. Ég rakst á grein sem mér fannst þess virði að staldra við en efast um að ég gefi mér tíma til að lesa hana. Ef ég snara þessu yfir á íslensku heitir greinin:
"Áhrif lýsis á lífslíkur, amínósýrurhlutfall í blóði og bólgutengda þætti hjá sykursjúkum rottum með blóðeitrun."
Þið haldið kannski að þetta sé grín en svo er ekki. Eftir að hafa fundið þessa grein kom yfir mig einhver þörf að finna svipaðar greinar þar sem ég var orðinn þreyttur á að leita að greinum fyrir þessa blessuðu ritgerð. Ég læt hér fljóta eina en og þetta var virkileg áskorun.
"Ákvörðun á innrænum myndefnum í þvagi úr rottum sem þjást af offitu, með þrýstihlöðnum hárpípu og litskiljumæli (rafrænum) og Ethyl Chloraformat afleiðslu."
Já blessuð séu vísindin. Ef einhver hefur áhuga á því að lesa þessar greinar get ég gefið upp slóðina en býðst ekki til að þýða meira en bara titilinn.

Ummæli