Af hinu og þessu
Dráttavél dagsins er Zetor. Ekki er nokkur vafi á því að þessar dráttavélar eiga stærstan þátt í hversu blómlegur landbúnaður er á Íslandi. Til að mynda hefur slík vél haldið lífinu í Brekkubændum um langa tíð. Leiðinlegt er til þess að vita að slóvenska eignarhaldsfyrirtækið HTC HOLDING Slovensko hafi sölsað þessu stórveldi vinnuvélanna undir sig.
Fyrri myndin er af Zetor 5211 (1989 model) með 3 cylindra Zetor Diesel vél sem skilar 45 hestöflum. Sú seinni er af Zetor Super 1957.
Annars var ég að komast að því að Celine Dion er með 16,8 í forgjöf og því nokkuð mikið betri í golfi en ég. Ég hef því sett mér ný markmið en vona að þau stangist ekki mikið á við fyrri markmið um að klára þetta mastersnám. Ef svo er þá bara því miður fyrir mig.
Varðandi áhrif fæðubótarefnið sem ég keypti þá hefur það ekki haft slæm áhrif á magann. Ég er bara eins og ég var fyrir, sí prumpandi og þarf að halda mér í húsgögn bara rétt svona svo ég þjóti ekki út um gluggann eða hálsbrotni við að skella í loftið. Ástæðan gæti verið sænskt eggjaprótein sem ég asnaðist til að kaupa fyrir mánuði síðan eða þá sænska háorkubrauðið Energy sem ég ét alltaf. Utan tilsett sucker, einhver banvæn blanda úr sænskri brauðmenningu en voða gott samt. Mér líður sem sagt vel.
Jæja nú er þetta að verða gott og allir ættu að sjá að ég er í andlegu jafnvægi. Ekki er úr vegi að enda þennan pistil á texta eftir meistara Megas. Verst að geta ekki sett þetta hérna inn sem lag þar sem það er bara hálft gaman að lesa bara textann. Ég vara góðborgara við að halda lestrinum áfram því textinn inniheldur ljót orð. Sögur segja að þetta hafi verið samið um ákveðinn stjórnmálamann.
Geir minn, Geir með vörtu
grátbólginn klæddur svörtu
kveð ég þitt lúsuga lókal
læði á braut mínum lók-al
vöruþrunginn og þunnur
það þrífst síst nokkur gunnur
mér á sjúku sinni
en segðu mér
hvað líður hringvöðvabólgunni
í leghálsopinu á langömmu þinni?
Takk fyrir mig í bili
Ummæli
Kv. M