Við hestaheilsu í Lundi

Jæja þá er bara aðeins að láta vita af sér en ég er við hestaheilsu enda er ég svo vel fóðraður hjá Hafrúnu og pabba. Hér hefur maður legið á beit í allskyns góðmeti og nýlenduvörur eru ekki af skornum skammti né skornar við nögl. Ég held svei mér þá að ég sé farinn að stækka svolítið og á ennþá von um að á endanum geti ég teygt mig upp í hefðbundinn eldhússkáp til að ná mér í glös og diska.

Nú styttist heldur betur í veiðiferð og við pabbi leggjum af stað til Smálanda seinnipartinn á morgun. Það er komið í ljós að við verðum bara tveir á svæðinu og það er fínt. Náum sennilega ekki að setjast út annað kvöld þar sem við verðum seint á ferðinni. Ég ætlaði svo upprunalega að keyra beint frá Smálöndum í Ás en er að hugsa um að koma bara aftur til Lundar á sunnudagskvöldið. Við karlarnir förum því bara á einum bíl uppeftir og ég legg af stað til Norge á mánudagsmorgun kl. 07.00.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Sæll Bjarni minn, bara að láta þig vita að allt er í fína lagi heima. Rollustúss, berjamór og grasaheiði. Gerist nú ekki betra. Halldóra plummar sig fínt í Seli, er farin að kokka hamborgara og steikja franskar. Hildur lét klippa sig í gær og hefur ekki verið með svona stutt hár síðan hún var kríli. Voða sæt. Jæja ég vona svo bara að þið feðgarnir eigið góðan tíma saman og veiðið eitthvað.
Góða ferð heim, M.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap