Verslunar og skemmtiferð
Jæja var að koma inn úr dyrunum eftir alveg ágætis ferð til Svíþjóðar. Við Íslendingarnir lögðum af stað kl. 08 í morgun án þess að vita hvert við værum að fara nákvæmlega. Keyrðum til Lysekil í Svíþjóð og átum þar eitthvað kebab, tókum svo ferju yfir fjörðinn og drifum okkur til Gautaborgar. Hugmyndin var að skoða einhver söfn eða eitthvað þar en vorum allt of sein fyrir svoleiðis fínerí. Gengum því bara um eins og asnar og vissum ekkert hvað við áttum af okkur að gera. Þar sem þessi borg er nokkuð lekker þá var það svo sem ekkert svo ógeðslegt. Stoppuðum svo í verslunarkjarna rétt norðan við borgina og þar var bílinn stútfylltur af allskyns góðmeti á sanngjörnu verði og keyrt á felgunni til baka. Þar sem ég er að fara yfir til Svíþjóðar á þriðjudaginn nennti ég nú ekki að versla mikið en það litla sem ég keypti var stórkostlegt. Það sem helst ber að nefna eru 2 kassar af Ramlösa í gleri (sódavatn) sem fæst ekki hér og tvær túpur af ärtsoppa sem er himnesk baunasúpa með fleskbitum. Það verður því einfaldur og kraftmikill kvöldmatur hjá mér næstu tvo daga. Enduðum svo á því á leiðinni heim að éta trukkaborgara á einhverjum veitingastað. Sænskir kjötfarshamborgarar í vegabúllum eru sjálfsagt misjafnir en ég held það séu ekki meðmæli með matnum að við fengum vatn í munnin 2 tímum eftir matinn.
Ummæli
Pápi