Rolling Stones
Jæja þá er kallinn búinn að skella sér á Stones tónleika. Pabbi vakti mig snemma í gærmorgun og spurði hvort ég vildi miða. Að sjálfsögðu hugsaði maður sig ekki tvisvar um skellti sér að sjá kallana uppí Gautaborg. Gamalmennin brugðust ekki vonum manns og þetta var alger snilld. Sviðið var rosalegt, 56.000 manns á vellinum, Jaggerinn skoppandi eins og unglamb, Keithinn svona ljómandi fallegur í Pirates of the Carabians- múnderingu og margir slagarar leiknir af fingrum fram sem aldrei fyrr. Eina óstuðið voru dauðadrukknir Svíar sem voru fyrir aftan mig að sulla bjór yfir mann og dettandi út um allt. Sem Íslendingur var ég sjokkeraður yfir að sjá hvað sumt fólk kann ekki að fara með vín. Aldrei í lífinu hefði ég haldið að áfengið gæti leikið unga pilta svo grátt.
Annars er ég kominn til Lundar aftur og við erum að fara að elda dádýr, hvað annað. Hafrún náði sér í einhvern flensuskít en annars allir aðrir að meika það. Legg af stað í fyrramálið upp til Lisekyl (held það heiti það) og hitti Þolla annað kvöld. Síðan er ekki umflúið að mæta í skólann á mánudaginn. Ég man ekki hvernig er að ganga í skóla en vona að það sé ekki leiðinlegt, annars fer ég heim í gæs.
Sósíaldemókrat kveðjur, Bj

Ummæli