Hvar er í heimi hæli tryggt?

Ég er búinn að hitta manneskju sem er svo leiðinlegt að það snýst eiginlega upp í andhverfu sína. Það versta er að geta ekki gefið mynd af því hvernig blessuð skepnan talar. Ég segi þetta ekki út af mannvonsku, heldur er hún með indislegan þýskan hreim sem kórónar þetta sköpunarverk sem hún er. Þessi stelpa er að byrja hér í skóla og kom á puttanum frá Austuríki þar sem hún býr. Fyrstu kynnin af henni voru þegar hún bauðst til að kenna kennurunum í gær einhverja leiki sem áttu að þétta hópinn saman. Leikina lærði hún í kúrsi í cultural awerness í Vín. Eftir fyrirlestrana, þegar prófessorarnir voru að fara tróð hún sér upp í pontu og bað alla að sitja eftir og læra þessa leiki.

Í dag var fyrirlestur hjá prófessor í matvæla- og næringarfræði. Hún var alls ekki sammála fyrirlesaranum varðandi innihald í norsku brauði og fannst vond hugmynd að frysta brauð til geymslu. Það eru nefnilega til svo indælir réttir frá Austurríki sem innihalda gamalt brauð. Þá sparar maður orku og minnkar gróðurhúsaáhrifin, getur slökkt á frystinum sínum. En þetta er bara brot af því sem hún hefur deilt með okkur.

Þegar allir voru að verða fullsaddir af innisetu í dag tróð hún sér upp í pontu í miðjum fyrirlestri og sýndi okkur lífrænt ræktað grasker sem hún hafði verslað einhversstaðar og tekið með sér í skólann. Nú bauð hún öllum að koma á matreiðslunámskeið og læra að gera lífræna graskerssúpu að fundi loknum. Hún fékk reyndar enga stofu undir verkefnið og hélt námskeiðið fyrir utan skólann.

Annars skrapp í til Askim sem er hérna 30km suð- austan við Aas, kíkti á golfvöllinn hjá þeim og sló nokkra æfingarbolta eftir skóla. Lenti í helli rigningu og veit svo sem ekki hvernig spáin er. Það skiptir svo sem ekki öllu þar sem ég held ég verði að hanga yfir tölfræði alla helgina. Las einhversstaðar hvað væri lágmarks kunnátta fyrir námskeiðið sem er að byrja á mánudaginn og fékk vægt sjokk. Ef ég kunni þetta einhverntímann þá er það djúpt grafið bak við stein og þoku. Ég hef það því bara drullu fínt held ég og læt þetta duga í bili. Set einnig inn örfáar myndir frá Ási.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Bjarni minn,

Það er alltaf jafn gaman að lesa pistlana þína, það leynast í þér greinileg stílistagen. Hlakka mikið til að heyra fleiri sögum af þeirri austurrísku, greinilega toppmanneskja þar á ferð.

Við Táta erum hér í sveitinni og eigum von á mömmu þinni, Agli og stelpunum á morgun.

Bestu kveðjur og vertu duglegur að lesa tölfræðina.

Jens
Bjarni sagði…
Já takk fyrir það. Það er reyndar komið eitthvað problem upp með þennan áfanga en ég geri mitt besta
Janneke Nijboer sagði…
Hello,
I am from Holland and looking for the music belonging to the titel of your blog, from Sigfus Einarsson. Our Chamberchoir Enchanté is going to sing this song on our next concert. Do you know a link to an MP3?
Thank you,
Janneke

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap