Keflavík vs. Akureyri
Hvað er öðruvísi við að fljúga beint frá Akureyri til útlanda samanborið við Keflavík? Nú sit ég á Akureyrarvelli og var að velta þessu fyrir mér.
Feitur sköllóttur kall í stuttbuxum (það er rigning og kalt) segir að tollararnir séu bölvaðir aumingjar út af því að vopnaleitin opnar 15 mínútum of seint.
Steini P sem elti mann á röndum í gamla daga á 1929, Dropanum og Torginu og spurði um skírteini er að vinna í vopnaleitinni.
Baldvin H labbar í gegnum vopnaleitina athugasemdalaust með fullan poka af frosnu soðbrauði, í kjölfarið fylgir einhver kona með kassa af lakkrískonfekti fyrir fríhöfnina.
Maður er látinn standa með útréttar hendur og þuklað á manni til að finna vopn sem voru ekki til staðar í þessu tilviki.
Sverrir frændi er að afgreiða bjór og veitingar.
Fríhöfnin er 2,3m2 og selur 5 tegundir af tóbaki, 5 af nammi og 7 af víni og unaðsolíu.
Ég skil töskuna og tölvuna eftir á borðinu hjá einhverju fólki sem ég þekki ekki neitt og fer á klósettið og í frífhöfnina.
Ég fæ mér skyr og rúgbrauð með saltreið áður en ég fer í loftið.
Ég get farið í Rauðakross- spilakassa.
Mér er sagt að ég geti farið út í bíl ef ég nenni í vopnaleitina aftur.
Ég er helst að komast að þeirri niðurstöðu að þetta sé alveg hreint dásamlegt en ætti kannski að bíða með að hrópa húrra áður en maður kemst í loftið.

Ummæli