Höfum það gott




Vöknuðum kl. 07 í morgun og gerðum okkur sæta og fengum okkur morgunmat. Skelltum okkur síðan á völlinn og spiluð hring með einhverjum snillingi sem heitir Kjell og var hann álíka lélegur og við í golfi, sem var fínt. Ekkert markvert gerðist svo sem nema að ég skaut næstum niður vallarstarfsmann sem var að vinna við næstu holu á einni brautinni.

Erum annars búnir að fara og versla og grilla Svenna pulsur. Svenni sem er íslenskur býr hér við hliðina á pabba og Hafrúnu og býr til bestu pulsur í Svíþjóð. Svo liggja gæsabringu í mareneringu og dádýrahakk verður fljótlega tekið út. Það ættu því allir að sjá að við höfum það fínt. Reyndar er leiðinda spá og lítur jafnvel út fyrir rigningu 2 næstu daga. Við finnum okkur eflaust eitthvað til dundurs en getum alveg ábyggilega alls ekki komið okkur saman um hvað það á að vera.

Var búinn að lofa að setja inn myndir og hér koma 2. Ég set ekki inn fleiri þar sem það tekur bæði ótrúlega langan tíma og stundum vill bloggið ekki taka við þeim. Svíar kunna ekkert á tölvur og blogg greinilega. Fyrta myndin heitir "Den lille havdreng" og hin heitir "Maður púttar að húsi".
Kærar kveðjur til allra þarna heima, Bjarni og Stefán

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hæ þetta er Hildur aftur!
það kom það sama fyrir mig nema ég
skaut næstum niður hænu og vaknaði
klukkan hálf 8.það rignir
stanslaust hér.Ég helga og guðrún
vinkona erum búnar að byggja risa
gras hús með 2 herbergjum og tré þaki!Skrifa aftur seinna.kossar og
knús:Hildur

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap