Halló
Jæja þá er þessi dagur að kveldi kominn og það liggur við að maður ætti ekki að vera skrifa neitt. Ástæðan er að hér er hver dagur búinn að vera öðrum líkur. Vöknuðum í morgun, átum og fórum í golf. Fengum einhverja rosalegustu rigningu sem við höfum lent í og þurftum að leita skjóls undir tré í nokkrar mínútur. Vorum svo að éta alveg indælis dádýrabollur og einhvern djúsí jarðarberjadesert. Stebbi fer rétt eftir hádegi á morgun og við höfum því ekki mikinn tíma aflögu til skemmtilegheita.
Komumst aldrei í bæinn í gær að kíkja á dömur þar sem bíllinn var að verða bensínlaus og við áttum hvorki pening fyrir eldsneyti né kaffi. Þannig að mamma þarf ekkert að spá í hvernig dömunum leist á okkur.
Kveðja, Bjarni og Stefán

Ummæli
allt fínt hér heima, nema að ég fer að vinna á þriðjudaginn og bara nenni því ekki. Egill niðri á Ás að binda, HE í vinnu, HGE hjá Aldísi og MHE með vinkonu hjá sér sem ætlar að gista. Svo allt gengur sinn vanagang (það er best)
Mundu svo að ganga vel um.........
Knús og góða nótt.
M