Ferð til Seyðisfjarðar
Þá er maður búinn að koma bílnum sínum í dallinn á Seyðisfirði. Það er alveg ótrúlega róandi að fara til Seyðisfjarðar og eyða þar smá tíma og ég hefði alveg getað bætt við 2 aukadögum. Skemmtilega blanda af fjöllum, sjó og gömlum misgáfulegum húsum og fólki. Toppur ferðarinnar var skötuselsmáltíð hjá Andra og Svövu í gærkvöldi og í kjölfarið ferð á Zodiak- slöngubát út fyrir Skálanes. Fórum undir bjargið um miðnætti á spegilsléttum sjó og það var ágætt að minna sjálfan sig á hvað maður er lítill og ógeðslegur. Á bakaleiðinni var drukkið kaffi með listamaönnum (alvöru) frá Shettlandseyjum í gamla húsinu á Skálanesi. Þeir voru þar staddir að mála vatnslitamyndir af fuglum og náttúru. Þvílíkur staður og maður er í rusli að hafa ekki haft myndavélina með.
Nú er bara opna breska frá 8 til 18 um helgina, vinna á kvöldin og út með Stebba á mánudaginn.
Nú er bara opna breska frá 8 til 18 um helgina, vinna á kvöldin og út með Stebba á mánudaginn.
Ummæli