7


Mér finnst það skylda mín og það er mér ljúft að tilkynna lesendum mínum að Callaway sjöan mín (sem Þórður braut) er komin frá útlandinu með nýtt skapt. Ég hef ákveðið að skýra hana í höfuðið á kylfusatistanum hennar og mun hún bera nafnið Þórður. Ég hugsa ég muni samt bara kalla hana Tobba eða kylfa nr. 7. Fyrir þetta þarf Þórður nú ekki borga nema 2500 kr. sem er vel sloppið.


Þórður lét sér ekki nægja að ráðast á mín áhugamál heldur steig hann ofan á flugustöngina sína í vikunni sem leið og braut á henni toppinn. Gerði þar með næstum út um feril sinn sem stangveiðimaður. Ég samhryggist honum og vona hann láti af því fljótlega að eyðileggja frístundabúnað fjölskyldunnar ellegar fer hann á hausinn.

Ummæli

Halldór sagði…
Það er aldeilis, það updeitast hér hraðar heldur en á síðunni hjá ellý ármanns, verður þú kannski nakinn framan á næsta Ísafoldartímariti....
Bjarni sagði…
Nei en ég ætlaði að birta mynd af mér nöktum í glímuskónum. Þeir bara fundust ekki.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap