Lífið er lag
Mikið var ég glaður þegar ég rakst á gömlu góðu Aksjón þegar ég var að stilla inn stöðvarnar á gamla sjónvarpinu mínu. Reyndar heitir stöðin núna því fallega og skáldlega nafni N4 en það skiptir ekki máli. Það sem skiptir máli er að maður þarf aldrei aftur að hafa áhyggjur af því hvað maður á að horfa á. Það er mikilvægt að við Íslendingar eigum fjölmiðil sem kafar djúpt í þau mál sem aðrir fjölmiðlar hunsa og sjá ekki ástæðu til að fjalla um.
Ég kom mér vel fyrir í sófanum, lappirnar upp á borð og horfði á viðtal við Þórhöllu Þórhallsdóttur, verslunarstjóra Hagkaupa á Akureyri ræða um roksölu á trampolínum á tímabili í apríl og ítarlega umfjöllun um sumardagskrá Minjasafnsins við undirspil Enya. Þegar fréttaskýringarþátturinn var svo búinn tóku við N1 (Esso) auglýsingar og gamla góði júrósmellurinn "Lífið er lag" hljómaði dátt. Korteri seinna getur maður svo horft á herlegheitin aftur hafi maður misst af einhverju.
Ég vil biðja Adda afsökunar á því að þegar ég var heima um helgina gleymdi ég að taka mynd af glímuskónum mínum sem ég ætlaði að pósta hérna inn. Hún kemur bara seinna. Já og að lokum vil ég þakka Útvarpi Norðurlands innilega fyrir góða umfjöllun um ruslatínslu skólabarna á Dalvík í liðinni viku.

Ummæli