Ef fólk tárast ekki yfir þessum 3 myndböndum þá er um hörkutól að ræða. Maður er búinn að fá ógeð á öllu raunveruleikasjónvarps bullinu en þetta er svo sannarlega meik.
Vildi bara láta vita að ég er lífs en ekki liðinn og hef eytt meirihlutanum af þessari jólahátíð í góðu yfirlæti í Skagafirði. Þó ég hafi svo sem lítið annað gert en að hafa það gott, þá hef ég náð einum langrþáðum áfanga. Ég sá Sigfús Pétursson (Álftagerðisbróðir) syngja Ökuljóð á Þrettándagleði Karlakórsins Heimis. Nú get ég dáið sáttur, þvílíkur englasöngur. Síðan brugðum við Addi okkur í smá svartfuglstúr og var aflinn mjög hóflegur en fram úr hófi fjölbreyttur (fer ekki nánar út í það). Síðan má kannski líka nefna það að ég, Guðrún og strákarnir átum mjög svo óvenjulegan áramótamat. Í forrétt höfðum við Cocoa Puffs og í aðalrétt átum við brauð með smjöri og osti. Það var reyndar ástæða fyrir því að við ákváðum að gera svona vel við okkur og heitir hún rafmagnsleysi. Þetta var samt ljómandi rómantískt og mér hefur alltaf fundist Cocoa Puffs gott og ekki er nú brauðið mikið síðra. Annars er ég í þessum töluðu orðum atvinnulaus. Eða ég ætti kannski frekar að segja atvinnufár eða atvi...
Nú er ég að gera það sem ég ætlaði aldrei að gera, blogga um ekki neitt. Var að koma ofan af golfvelli þar sem við Gunni fylgdumst með Arctic Open. Það var ágætt, sæmilega mikið af hallærislegum köllum með skyggnishúfur og einn og einn búinn að fá sér vel í litlu tánna. Júsí stemmning og kellingar með sólskyggni og leðurhúð. Gærdagurinn átti að verða besti dagur í heimi og við Gunni og Þórður ákváðum að nota veðrið vel og spila golf á Dalvík. Völlurinn þeirra er reyndar í Svarfaðadal og er mjög huggulegur en jæja......... Ég spilaði hræðilega, Þórður braut nýju Callaway sjöuna mína í runna og á leiðinni af vellinum svona ca. 50 km frá Akureyri gaf bílinn olíuljós og allt stopp. Höfðum okkur reyndar til Dalvíkur eftir símtal við bifvélavirkja og svo í bæinn eftir að hafa velt fyrir okkur Hafoline olíum í drykklanga stund og verslað veitingar af appelsínugulri meikdrottningu sem ég gæti trúað að hafi verið ungfrú Dalvík 1985. Ég hef alveg verið í meira hátíðarskapi. Ef einhver les þetta ...
Það er vorfílingur í mér í dag. Já djöfullinn sjálfur. Ég ætla ekkert að útskýra það neitt frekar eða vera með neinar lýsingar á smábátakörlum og sílamáfum. Svo er okkur boðið í grill í kvöld. Heldurðu það sé ekki splæs? Jens frændi sendi mér alveg hreint magnaðan póst í dag. Þetta er blaðaúrklippa frá 1977, s.s jafn gömul mér. Ég er ekki frá því að ýmislegt hafi breyst síðan þá. Smellið á myndina til að fá þetta í leshæft ástand. Ég nenni ekki að skrifa meira, Bjarni
Ummæli