Góða helgi
Nú er að fara í hönd mikil gleðihelgi þar sem Stefán Pétur er að halda upp á þrítugsafmælið sitt. Straumur fólks sem allt er eitthvað öðruvísi en fólk er flest streymir nú norður yfir heiðar með skottin full af áfengi og hugann fullan af sjúkum hugsunum. Þetta gerist allt svo hratt, ég er sköllótur og Stebbi er gráhærður. Við erum nú að mestu lausir við alvarlega líkamlega kvilla en Stefán hagar sér þó oft á tíðum eins og hann sé sjötugur þusari, ég hlusta helst bara á rás eitt og borða rúgbrauð með síld í lopapeysunni minni. Svona er þetta bara.......
Stóru tíðindin eru hins vegar þau að mesti snillingurinn kemst ekki. Alban þarf að vinna eitthvað í sambandi við kostningarnar í Frakklandi og horfa svekktur á hægri menn sópa til sín öllum verðlaunum. Set inn eina mynd honum til heiðurs.
Ummæli