Helvítis della

Eins og vinir mínir vita sjálfsagt þá á ég til að ná mér í heiftarlega dellu við og við. Þannig hef ég fengið brennandi áhuga á skotveiðum (það breytist ekki), sökkt mér í heima fluguveiði eitt sumar, æft haglabyssuskotfimi, setið hnífanámskeið, fengið glímudellu, sjúkan áhuga á körfubolta, áhuga á fjarstýrðum bensínbílum, áhuga á líkamsrækt og eflaust mætti tína eitthvað fleira til. Oft geri ég þetta af þvílíkum krafti að ég get vart á mér heilum tekið svo dögum eða mánuðum skiptir. Oft renna þessar dellur þó út í sandinn, mishratt og árangur ekki alltaf til að hrópa húrra fyrir.

Ég hef ekki spilað golf í mörg ár en þegar líða tók á vorið fóru að kvikna annarlegar kenndir. Eitt leiddi af öðru og svo ég geri langa sögu stutta þá þarf ég að éta hafragraut 2 daga í viðbót þ.e fram að mánaðarmótum. Golfsettið var reyndar ekki dýrt og kostaði mig 16000 kall í Hagkaup, alveg prýðilega huggulegt Wilson x-31 fyrir þá sem hafa áhuga. Einnig er ég með þvílíkri nákvæmni farinn að staðsetja golfvelli víðsvegar um Danmörku, Svíþjóð og Noreg og fann mér til mikillar gleði ægifagran 18 holu völl í Ási þar sem ég dvel næsta haust.

Nú er bara að sjá hvað þessi nýja della mín endist lengi og ef þið þurfið að finna mig þá er ég sennilega uppi á Jaðarsvelli.

Ummæli

Halldór sagði…
hahaha ekki allir sem eiga tvö golfsett
Bjarni sagði…
Nei ég held ég hljóti að vera eftirsóttasti piparsveinn á landinu. 4 haglabyssur, 4 rifflar, 2 golfsett, fjarstýrður bensínbíll, slatti af gervigæsum, camogalli og glímuskór.
Arnþór sagði…
Ég er alveg viss um að glímuskórnir gera gæfumuninn. Hefur þú einhverntíma heyrt um kvendýr sem kiknar ekki í hnjánum þegar minnst er á glímuskó. Held að þú ættir að selja þetta golfsett aftur og kaupa meira af glímuskóm.
Bjarni sagði…
LOL! Ég tek þetta til greina og skoða málið. Fer allavega að ganga í þeim gömlu fljótlega.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap