Gleðilegt árið!
Úr heitum potti í Stykkishólmi um áramótin. |
Gleðilegt árið elsku vinir. Nú er maður að lenda eftir hátíðirnar sem voru með betra móti. Barnagleði til að byrja með en svo kósý með Hörpu eftir það. Við fengum lánað hús í Hólminum yfir áramótin og vorum bara að lenda á Eyrinni í gærkvöldi. Hef aldrei áður verið í heitum potti um áramót en mæli með því. Ekkert stress eða brenna upp peningum.
Talandi um að lenda.... ég var líka að lenda á nýrri stofnun í morgun. Er formlega orðinn starfsmaður Náttúruverndarstofnunar og veit ekkert hvað ég er að gera í vinnunni en fæ vonandi útborgað samt sem áður.
Í ræktinni í Stykkishólmi |
Ég hjólaði á mánudaginn (30. des) áður en við lögðum af stað í ferðalagið og svo fórum við í ræktina og í sund í Stykkishólmi á Gamlársdag sem var snilld. Ég er að taka aftur sömu viku og ég var með síðast því ég var að skíta á mig í þröskuldsæfingunum í síðustu viku. Ingvar gaf mér því aftur sömu æfingarnar í þessari viku og ég ætla rétt að vona að ég nái þeim núna. Á sama tíma og mér finnst formið vera á fínum stað, þá er ég samt að skíta á mig þegar ég er kominn upp fyrir tempo. Veit ekki alveg hvað er í gangi.
Annað sem ég finnn fyrir og það er að ég er ekki alveg jafn mótíveraður og ég var á sama tíma í fyrra. Kannski hefði ég þurft að hvíla lengur í haust?
Að lokum, ég á eiginlega eftir að gera upp árið í fyrra en er bara svo voðalega latur við að blogga. Geng í málið um helgina.
Ummæli