Áskorun

Í Dimmuborgum í sumar.

Ég stend frammi fyrir áskorun sem gæti kallast lúxusvandamál og það er að skipuleggja hvernig ég kem öllum æfingum inn í lífið í vetur. Þó ég sé ekki búinn að gera upp árið og taka ákvörðun með markmið næsta árs- þá eru áberandi líkur á því að ég muni aðeins hliðra til áherslum. Að hluta til eru þetta áherslubreytingar í æfingum (meiri styrkur)- en einnig áherslubreytingar svo ég geti verið betri pabbi, kærasti, starfskraftur og einsaklingur. 

Æfingar hjá börnun
Á meðan börnin njóta þess ennþá að æfa þá er það í algerum forgangi að koma þeim á æfingar og mót. Ég var að kíkja yfir æfingatöfluna hjá Dabjörtu og hún fer í fimleika 4x í viku. Ef brettaæfingar verða eins og í fyrra hjá Brynleifi, þá verður vika með börnunum svona:

Mánudagur:         Fimleikar 15:30 - 17:30
Þriðjudagar:         Fimleikar 15:30 - 17:30/Snjóbretti 17:15 - 18:45
Miðvikudagar:     Fimleikar 15:00 - 17:00
Fimmtudagar:      Snjóbretti 17:15 - 18:45
Föstudagar:         Fimleikar 14:30 - 16:30
Laugardagar:       Snjóbretti 10:00 - 12:00

Dagbjört s.s. farin að æfa 8 klst á viku!!!

Æfingar hjá mér
Að meðaltali vil ég ná 3 klst. af styrktaræfingum og 7 klst. á hjólinu fram í febrúar allavega. Aðra hverja viku verður það náttúrulega ekkert vandamál en það getur orðið áskorun þegar ég er með börnin. Ég var búinn að ætla mér að vera í hóptímum í Training For Worriors í KA heimilinu þar sem er alltaf styrkur á mánudögum og föstudögum en tímataflan hjá Dagbjörtu útilokar að ég geti náð þeim tímum. Sennilega er skásti kosturinn að kaupa kort í aðra rækt og fara þegar Dagbjört er í fimleikum. Ég verð hvort sem er alltaf í einvherju skutli. Helgarnar verða svo undirlagðar af hjóli og sennilega fimmtudagur líka. Ætli ég hvíli ekki á þriðjudögum.

Vinnan
Eitt af því sem ég var búinn að velta fyrir mér er hvort ég gæti tekið tíma í hádeginu úr vinnu og farið í ræktina. Þetta er eitthvað sem hentar mér ekki og með öllu brasinu í kring um þetta þá tekur þetta allt of langan tíma. Ég vil halda tímanum á milli 8 og 15 á daginn fyrir vinnu og ekkert annað. 

Morgunæfingar
Ég er einn af þeim sem get ekki tekið erfiðar hjólaæfingar á morgnana. Ég get í mesta lagi tekið endurance en mér finnst það drullu erfitt og líður bara ekki vel. Tæknilega séð gæti ég farið í ræktina á þessum tíma en þetta eykur bara á stressið í mínu lífi og þó ég fari yfirleitt ekki seint að sofa, þá vil ég ekki vera bundinn af því að sofna milli klukkan 21 og 22- sérstaklega ekki þegar ég er með börnin. Svefninn er gríðarlega mikilvægur og þetta býður upp á að maður fari að skerða hann og vera pirraður og stressaður að koma öllum í rúmið. Þetta er neyðarúrræði sem er í lagi að grípa til þegar eitthvað kemur upp en ekki hluti af mínu plani.

Út fyrir boxið
Áðan stóð ég inni í stofu og velti fyrir mér hvort ég gæti útbúið mér betri heimarækt til að gera styrktaræfingarnar mínar. Ég bý í blokk og það er því allavega út úr myndinni að vera með réttstöðu og hnébeygju græjur með einhverjum þyngdum. Ég gæti verið með þungar bjöllur og handlóð en á móti kemur þá hefur maður gott af því að fara út úr húsi og sjá annað fólk.

Niðurstaða
Mér finnst spennandi að búa til plan svo ég geti fittað öllu sem ég þarf að gera inn í dagatalið en ég er ekki alveg búinn að sjá fram úr því hvernig ég geri þetta en hafi samt tíma fyrir restina af fjölskyldunni, heimilshald og annað. Kannski þarf ég að skera niður stundir þar sem ég ligg uppi í rúmi, les fréttir eða blogga?

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap