Jebb, I did it

Nú er þetta víst orðið hluti af mér og ekki aftur snúið.

Harpa var staðráðin í að fá sér húðflúr á Kanarí en ég var að engjast um með þetta og þorði þessu ekki. Eins og ég ræddi um í einhverri færslu um daginn þá var ég að ofhugsa þetta eins og margt annað. Mig persónulega langaði ekki að taka eitthvað copy/paste af netinu og mér fannst þetta þurfa að hafa einhverja merkingu fyrir mig. Helst vildi ég hafa puttana í hönunni sjálfur.

Fljótlega eftir að við komum út fórum við á stofu og pöntuðum okkur tíma- Harpa með allt sitt á hreinu en ég sagðist ekki vera viss og var s.s. ekki undir neinni pressu. Þetta varð alveg þvílíkt hugarangur hjá mér og ég alveg við að beila á þessu. En þegar dagurinn kom leið mér eins og ég ætti alltaf eftir að sjá meira eftir að sleppa þessu en að láta bara vaða, sem ég og gerði á endanum.

Við örið á viðbeininu setti ég setninguna "lífið er ekki fyrir alla" og hitt er hjól, banani, kaffibolli og orðið Brekka (teiknaði það sjálfur). Ég ætla ekki að útskýra þetta neitt frekar hér en þetta hefur allt ákveðna merkingu fyrir mér.

En svo eru það stóru spurningarnar; sé ég eftir þessu og er ég ánægður? Nei ég sé ekki eftir þessu en ég er ennþá að venjast þessu. Mér finnst þetta eitthvað úr karakter við mig og flúrið á hendinni er í rauninni neðar en ég ætlaði mér og því alltaf sýnilegt ef ég er í bol. En er ekki leikurinn til þess gerður?

Ég sagði í póstinum þegar ég var að velta þessu fyrir mér að það þyrfti að vera einhver samfella í þessu og mér fyndist 3 lágmarkið ef maður væri að þessu á annað borð og ég held að ég standi við það. Næsta ferð til Kanarí er eftir ár og þá læt ég örugglega bæta við þetta. Ég hef ár til að engjast um og velta fyrir mér hvað það verður.

Níu klukkutíma vika lítur ekki út fyrir að vera mikið við hliðina á Kanarí-viku.

Nú er ég búinn að skrúfa niður kaffidrykkju um 80% og nikótínið um örugglega helming og ég vona að það skili árangri við að laga þessi aukaslög í hjartanu á mér. Ég var að mestu leiti laus við þetta í gær en í dag hef ég fundið aðeins fyrir þessu ef ég hef lagst niður, en það er frekar vægt og ég er mikið rólegri yfir þessu þar sem ég veit að þetta er ekki hættulegt.

Þar sem læknirinn taldi ekki varasamt að taka æfingar þá náttúrulega gerði ég það skammlaust en fór mér hægt til að byrja með. Ég reyndi að halda púlsi í 120 (sem er lágt zone 2 hjá mér) og fylgdist alltaf vel með öllu. Ég var bara fínn og ekkert óeðlilegt í gangi sem er mjög jákvætt.

Ég vona að með því að trappa niður kaffið og púðana muni ég ná þessu öllu í eðlilegt horf á nokkrum dögum en það kemur í ljós þegar ég fæ 24 tíma hjartarit einhverntíman á næstu vikum. En ég finn eina stóra breytingu strax og það er hvað ég sef hrikalega vel þegar ég er ekki stútfullur af koffíni. Ég steinrotaðist í gærkvöldi og svaf eins og engill án þess að rumska í 8 tíma.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap