Dagur 2 án nikótíns
Maður er kominn í lakkrísinn í staðinn. |
Þetta er dagur 2 hjá mér í nikotínstraffi og það gengur í rauninni bara vel. Auðvitað fylgir þessu deyfð og sorg, maður var jú að missa vin. En líkamleg einkenni hafa ekki mikið látið á sér kræla og þetta er ekki eins bölvað og þegar ég hætti að reykja. Þá var ég hreinlega veikur í 2-3 daga á eftir. Ég bíð í rauninni bara eftir einhverju hressilegu bakslagi. En eins og ég segi þá er þetta bara að mestu leiti gott, en ég sakna þess mest að fá mér ekki í vörina með morgunbollanum og eftir matinn.
Although we don’t yet have much evidence on the long term health effects of nicotine pouches, we know nicotine is addictive and harmful to health. For example, it can cause problems in the cardiovascular system (such as heart arrhythmia), particularly at high doses.- Ivy Shih, University of Sidney
Ég fann ekkert fyrir hjartsláttaróreglu í gær fyrr en eftir æfinguna mína þegar ég var kominn upp í sófa og búinn að borða. Í dag hef ég ekki fundið fyrir neinu heldur en bíð spenntur að sjá hvort þetta geri vart við sig eftir æfinguna í dag. Ef það er tilfellið að hreyfing og líkamleg áreynsla komi þessu af stað, þá þarf ég náttúrulega að ráðfæra mig eitthvað við lækna. En ég þarf líka að hafa í huga að það er ekkert óeðlilegt að það taki smá tíma að vinda ofan af þessu og ég gef þessu 2 vikur.
En þar sem ég á svo mikið bágt er ég aðeins farinn að finna staðgengla fyrir eitrið til að nota sem hækjur fyrst um sinn. Gamli lakkrísfíkillinn kom upp og mér finnst gott að henda í mig einni og einni Ga.Jol pillu. Ég er líka búinn að vera að gera betur við mig í mat og drykk og það er allt í lagi tímabundið. Maður er jú að losa sig við skaðvald sem aldrei stóð til að gefa far of lengi. Áfram veginn!!
Ummæli