Analytics
Á GC-505 á leiðinni upp í Soria að fá sér hádegismat. |
Nú virðist sem hjartavesenið sé að baki og lausnin hafi verið að hætta þessari nikotínneyslu. En til að vera on the safe side, þá var settur á mig Holton skanni uppi á sjúkrahúsi áðan. Ég er því allur í einhverjum helvítis snúrum og drasli þangað til klukkan 11 í fyrramálið. En þó það líti út fyrir að þetta fái allt farsælan endi þá er ég pínu sjokkeraður yfir þessu öllu. Að maður hafi verið farinn að ganga svo nærri sér með neyslu á nikótíni að það hafi verið farið að hafa áhrif á hjartað í manni. Ég vona að þetta verði til þess að ég falli aldrei í freistni aftur.
Síðan ég kom frá Kanarí þá er ég búinn að taka 11 hjólaæfingar, mest allt endurance. Ég ætla ekki að ljúga því að ég sé að njóta þeirra í botn, þetta er að verða komið gott af inni hjólreiðum í bili. Sólin og útiveran kveiktu í manni og nú get ég ekki beðið eftir að taka fyrstu útiæfingarnar. Verst að það er ekki útlit fyrir það á næstunni, spáin er köld, dökkblár litur og jafnvel útlit fyrir stórhríð. Sannkallað páskahret.
Ég var orðinn helvíti rogginn með hvað það var alltaf mikil traffík hérna á blogginu mínu en ég hafði s.s. grun um að stjórnborðið á Blogger væri kannski ekki alveg treystandi til að gefa góðar tölur. Ég stofnaði því aðgang að Google Analytics og tengdi við bloggið. Niðurstaðan er að 80-90% af þessari umferð voru einhverjir "bottar" og ég er að fá 0-6 innlit á dag síðustu 10 daga. Það eru í sjálfum sér engin vonbrigði enda hef ég ekki verið að blasta þessari síðu neitt. Eiginlega bara furðulegt að einhverjir nenni að kíkja við miðað við að ég skrifa orðið bara um hjólreiðar.
Í kvöld ætlum við börnin að borða með Hörpu en síðan ætla ég að drösla öllu liðinu upp í sveit á morgun. Síðan kem ég væntanlega eitthvað í bæinn til að taka æfingar en við verðum í Brekku á Páskadag.
Ummæli