Stóri dómur- FTP test

Minn staður þessa dagana.

Þá er þessi "test" vika að baki og ég er bara þokkalega ánægður með niðurstöðuna. Auðvitað vill maður alltaf sjá meira en ég bætti mig þó bæði í 5- og 20 mínútna afli. 

Ætli ég flokkist ekki sem "punchy" hjólari og því er 5 mínútna effort minn tebolli. Þar er ég í 5,3 w/kg- sem setur mig í Cat 2 - eða "Very Good" eins og það er flokkað. Þar fyrir ofan kemur Exellent, Exeptional og að lokum World Class. Stefni að því að komast upp í Cat 1 í sumar.

20 mínútna FTP test frá því í morgun.

Í dag tók ég svo 20 mínútna testið sem er hinn gullni standard fyrir það hversu sterkur maður er. Niðurstaðan gefur manni FTP gildið- mat á styrkleika og mesta afl sem maður getur haldið í 1 klst. Testið samanstendur af upphitun, síðan 1 x 4mín á VO2max, svo hvíld og að lokum 20 mínútur "all out". Þegar því er lokið tekur maður 95% af meðalvöttunum fyrir þessar 20 mínútur og fær út FTP gildið (Functional Threshold Power).

Ég ákvað að leggja mig fram um að gera þetta vel og var farinn að skipuleggja þetta í gær. Í gærkvöldi át ég pasta og hvítlauksbrauð. Í morgun vaknaði ég svo klukkan átta og át hafragraut með hlynssírópi og slappaði svo af í 2 klst. 

Stefnan var að halda 260-270 w fyrstu 10 mínúturnar en reyna svo að gefa í eftir það ef ég ætti eitthvað inni. Eftir 5 mínútur var ég farinn að síga aðeins niður en leyfði því að damla fram á mínútu 10 án þess að hafa of miklar áhyggjur. Þá skipti ég niður í þyngri gír og eftir það fór þetta að verða helvítis barátta. Þegar þrjár og hálf mínúta var eftir skipti ég niður um 1-2 gíra og þjösnaðist á pedölunum eins og ég gat (á mjög lágum snúningi). Þegar 1 mínúta var eftir stóð ég svo upp og kláraði mig. Síðustu 3,5 mínúturnar var ég á rétt rúmlega 280 vöttum.

Niðurstaðan var 269 w sem er bæting um 8 vött síðan síðast. FTP-ið mitt er því í 256 w sem er það hæsta sem ég hef séð inni. Í dag er ég 64 kg og ég stend því í 4 w/kg sem er gott. Það var alltaf markmið hjá mér að ná FTP-inu upp í 4 w/kg en nú er farið að vera normið hjá mér að vera í kringum það. Á þessu sýnist mér að það sé vel raunhæft hjá mér að ná FTP-inu í 270-280 w í sumar. Ég er yfirleitt 10-20% hærri úti.

Að lokum, testið var nokkuð vel framkvæmt hjá mér og ég er bara sáttur. Ég lenti reyndar inni í mjög hröðu samhjóli á Zwift í prófinu og var í hópi allan tímann. Mér fannst það óþægilegt og fannst vöttin rokka aðeins upp og niður eftir því hvort ég var fremstur eða ef ég datt inn í hópinn. Ég gleymdi líka að lofta vel út áður en ég byrjaði og það var ógeðslega heitt í herberginu. Það gæti alveg hafa kostað mig eitthvað.

Uppfært: Ingvar kommentaði á ummælin mín eftir testið á TP þar sem ég var að segjast að ég hefði viljað sjá hærri tölur. Hann minnti mig á að það væri bara febrúar ennþá og að við værum á réttri leið. Gott að vita það!

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap