Þorramaturinn að hjálpa?
Recovery biti eftir þriggja tíma endurance æfingu. |
Jæja þá er enn ein skrautleg vikan búin og ég stend ennþá í lappirnar. Börnin eru búin að vera lasin (Dagbjört sárlasin) og eins og oft áður hélt ég að ég væri að fara sömu leið. Ég var farinn að finna fyrir einhverjum einkennum um miðja viku en varð aldrei það slappur að ég treysti mér ekki til að allavega byrja að hjóla og sjá til hvernig færi.
Síðustu vikur á Strava og þar af ein hvíldarvika. Fínn stöðuleiki. |
En þetta endaði allt vel, allar æfingar grænar og ég var alltaf yfir TSS skorinu sem ég átti að skila. Vikan var blanda af endurance, þröskuldi, steady state og einni krefjandi over/under.
Endurance æfing dagsins var þrír tímar á Zone 2. |
Over/under æfingin var í gær (laugardag) og ég var því ekki alveg viss um hvernig ég yrði gíraður í langa endurance æfingu í morgun. En það er skemmst frá því að segja að ég var alveg drullu öflugur og hef aldrei haft meira á tilfinningunni en að Ingvar sé að gera eitthvað rétt. Hér fyrir ofan sést hvernig vöttin og púlsinn haldast jöfn í gegnum alla æfinguna, allt eins og það á að vera. Í lokin var ég reyndar farinn að gefa aðeins meira í því púlsinn var farinn að detta óþarflega mikið niður. Ég velti því fyrir mér hvort þrjár máltíðir af þorramat um helgina hafi ekki verið að vinna með mér?
Ingvar er búinn að henda upp fyrir mig næstu viku og hún verður jafn löng í klukkutímum og síðasta vika, en erfiðari. Þar munar mestu um alveg hrikalega over/under með sprettum á laugardaginn næsta sem verður 140 TSS stig. Sjáum til hvernig ég höndla 3 tíma æfingu daginn eftir það.
Ummæli