Græn vika
Enn ein græn vika hjá mér á Training Peaks. |
Síðasta vika hjá mér er held ég örugglega lengsta vikan í klukkutímum talið sem ég hef tekið eftir að ég byrjaði í þjálfun hjá Ingvari. Það var alltaf stefnan hjá mér að ná nokkrum svona vikum en það hefur verið meira en að segja það að láta það verða að veruleika með allt sem er í gangi. Og svo er maður fjandakornið kominn á limmið með að fá nóg af innihjólreiðum þegar maður tekur rúmlega 2 klukkutíma á dag sex daga í röð. Þessi vika var 13:46 klst.
Ég held áfram að ná grænum æfingum og síðan ég byrjað í október hef ég aldrei misst úr æfingu og ég hef alltaf neglt þær skv. plani. Það er í rauninni alveg fáránleg staðreynd og það hlýtur að koma að því að ég verði lasinn.
En ég kem ágætlega út úr þessari síðustu viku þó ég finni náttúrulega smá þreytu í lærunum- en til þess er leikurinn gerður. Og svo er ég með smá pirring í hálsi og kvef. Það gerist líka oftast þegar ég er búinn að taka svona vel á því. Þá er ónæmiskerfið veikt og tekur smá tíma að ná sér.
Nú verður einn dagur í frí og svo kemur önnur svipuð stór vika. Svo koma 2 frídagar á meðan við komum okkur til Kanarí. Þar verða væntanlega 6 stórir dagar í sól og hita. Svo kemur smá hvíld og svo VO2 max dauði.
Ummæli