5 mín - test og allt í réttri leið
5 mínútna kaflinn í VO2max testinu sem ég tók í dag. |
Ingvar vildi skella á mig testum í þessari viku- bæði 5 mín VO2 max testi (í dag) og svo 20 mín FTP testi (sunnudag). Þar sem ég er nálægt andlegri bugun eftir hvern einasta vinnudag þessar vikurnar var ég ekki viss um hvort þetta væri sniðugt en lét svo slag standa. Ég hugsaði þetta þannig að á móti þá væru þetta færri klukkutímar og auðveldari vika með börnin.
Í dag tók ég 5 mínútna testið og var reynslunni ríkari eftir alveg glataða tilraun síðast sem ég klúðraði. Fyrsta svona testið tók ég í október og var þá í 310 vöttum, það næsta kom í nóvember og skilaði mér 216 vöttum en núna gerði ég gott betur og var í 337 vöttum sem gera 5,2 w/kg sem er þokkalega gott og á pari við það besta sem ég hef gert úti þar sem ég er alltaf að "vatta" miklu meira. Í ljósi aðstæðna og hvernig mér leið fyrir testið þá er ég bara sáttur. Bæting um 21 vött er fínt.
Eins og sést á grafinu fyrir ofan þá byrjaði ég að sleika 350 vöttin en fór svo aðeins að síga niður. Þegar 2 mínútur voru eftir ákvað ég að standa upp og gefa allt í þetta. Eða það held ég að minnsta kosti. Ég er í það minnsta búinn að vera sár í öndunarveginum eftir þetta og var óglatt þegar ég kláraði. Þannig á þetta að vera.
Ummæli